Bærinn lýstur upp

Fagurlega skreyttur ljósastaur í Kópavogi.
Fagurlega skreyttur ljósastaur í Kópavogi.

Kópavogsbær lýsist upp um þessar mundir en verið er að prýða bæinn ljósum eins og venjan er í nóvember. Hafist var handa í lok október og hefur síðan þá verið unnið að uppsetningu jóla- og skammdegisljósa.

Ljósin fara upp um allan bæ allt frá menningarhúsum og upp í Guðmundarlund, við vegi í bænum og stofnanir.

Kveikt verður á jólastjörnunni á Hálsatorgi miðvikudaginn 20. nóvember.

Lokahnykkurinn í jólalýsingu bæjarins er svo þegar kveikt er á bæjartréinu þann 30.nóvember á aðventuhátíð Kópavogs.