Börn og ungmenni funduðu með bæjarstjórn

Börn og ungmenni ásamt bæjarfulltrúum og bæjarstjóra Kópavogs.
Börn og ungmenni ásamt bæjarfulltrúum og bæjarstjóra Kópavogs.

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar fundaði með fulltrúum ungmennaráðs bæjarins og fulltrúum grunnskólabarna Kópavogsbæjar þriðjudaginn 28.maí.

Fulltrúar grunnskólabarna kallaðir barnaþingmenn mættu til fundarins með sjö tillögur sem eru afrakstur skólaþinga í grunnskólum bæjarins og Barnaþings sem haldið var í mars síðastliðnum. Barnaþing vann úr tillögunum og setti í umsögn og kosningu meðal barna bæjarins. Þá kynntu fulltrúar ungmennaráðs fjórar tillögur sem eru afrakstur ungmennaþings.

Meðal tillagna barnaþingmanna var að stytta skóladaginn, fara í fleiri vettvangsferðir í skólum bæjarins og að boðið verði upp á meiri aðstoð í heimanámi fyrir alla nemendur en þessar þrjár tillögur nutu mestrar hylli í nemendakönnun. Aðrar tillögur voru aukin áhersla á listir og verklegt nám, jafnt aðgengi, símareglur og fartölvur í stað spjaldtölva.

Fulltrúar ungmennaráðs lögðu til betri aðstöðu og viðhald sparkvalla, bætta vellíðan nemanda með aukinni fræðslu, öryggi á bílastæðum og meiri flokkun.

Bæjarfulltrúar brugðust við tillögunum og fögnuðu tækifærinu til að funda með börnum og ungmennum. Tillögurnar sem voru bornar fram verða settar í farveg innan sveitarfélagsins.

Hér má sjá tillögurnar Barna- og ungmennaþings 2024:

Tillögur barnaþings 2024

1. Aukin áhersla á listir og verklegt nám

2. Jafnt aðgengi fyrir alla.

3. Meiri aðstoð fyrir alla nemendur

4. Fleiri vettvangsferðir

5. Símareglur og símalaus svæði í skólum

6. Fartölvur í staðinn fyrir spjaldtölvur

7. Styttri skóladag

Tillögur ungmennaþings 2024

1. Aðstaða og viðhald sparkvalla

2. Bæta vellíðan nemanda með aukinni fræðslu

3. Öryggi á bílastæðum

4. Meiri flokkun