- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa lagt sameiginlega matslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Kópavogs og Reykjavíkur fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Breytingarnar felst í að staðsetja legu fyrstu lotu Borgarlínu og svokallaðrar kjarnastöðvar milli Hamraborgar í Kópavogi og Ártúnshöfða í Reykjavík, ásamt fyrirhuguðum breytingum á Sæbraut og Miklubraut.
Þetta er í fyrsta skipti sem samráðsgátt stjórnvalda er notuð til að kynna skipulagsbreytingar á vegum sveitarfélaga en Borgarlínuverkefnið er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga og því liggur beint við að nýta gáttir beggja aðila í samráðsferlinu.
Verk- og matslýsingar verkefnisins verða í kynningu frá 7. apríl til og með 9. maí og verður hægt að nálgast þær á eftirfarandi slóðir: samradsgatt.islands.is; ssh.is; kopavogur.is; reykjavik.is/skipulag-i-kynningu; adalskipulag.is.
Frestur til að athugasemda rennur út þann 9. maí 2020 og þeir sem vilja senda inn ábendingar og athugasemdir verða að gera það skriflega. Hægt verður að senda þær á samráðsgáttina, eða ssh@ssh.is, skipulag@reykjavik.is eða á skipulag@kopavogur.is Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem berast.