- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Kópavogs. Þeir listamenn koma einir til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi.
Bæjarlistamaður Kópavogs skal vera tilbúinn til að vinna með Kópavogsbæ að því að efla áhuga á list og listsköpun í bænum og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi. Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljónir króna.
Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og ábendingar. Í þeim skulu koma fram upplýsingar um náms- og starfsferil viðkomandi og hugmyndir um með hvaða móti bæjarlistamaður hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa.
Umsókn eða ábendingar skal senda fyrir 15. apríl
Umsókn eða ábendingar skal senda fyrir 15. apríl á netfangið menning(hjá)kopavogur.is