Sumarfrístund hefst 12. ágúst

Gert er ráð fyrir að börn útskrifist úr sínum leikskóla fyrir sumarfrí og hefji aðlögun að næsta sk…
Gert er ráð fyrir að börn útskrifist úr sínum leikskóla fyrir sumarfrí og hefji aðlögun að næsta skólastigi í sumardvöl við sinn hverfisskóla.

Sumardvöl frístundar hófst 12. ágúst í ár 2024 fyrir verðandi nemendur í 1. bekk. Sumarfrístund er skipulögð í anda þeirrar stefnu að skapa bætta samfellu á milli skólastiga.

 

Markmið sumarfrístundarinnar er að stuðla að vellíðan, öryggi og jákvæðri aðlögun nemenda, jafnt félagslega sem námslega að umhverfi grunnskólanna áður en formlegt skólastarf hefst.

 

Gert er ráð fyrir að börn útskrifist úr sínum leikskóla fyrir sumarfrí og hefji aðlögun að næsta skólastigi í sumardvöl við sinn hverfisskóla. Sumardvölin er opin frá 8:00 að morgni til 16:00 síðdegis og geta foreldrar valið ólíkan dvalartíma yfir daginn. Tekið er á móti börnunum frá 8:00 til 9:00. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og hressingu fyrir og eftir hádegi.

 

Skólasetning hjá grunnskólum verður föstudag 23. ágúst en lokað er í frístundum á skólasetningardegi til að undirbúa vetrarstarfið.