- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Nýr verktaki tók við sorphirðu í Kópavogi 1. ágúst. Í kjölfarið tók nýtt sorphirðudagatal gildi. Hirðutíðni mun haldast óbreytt fyrir alla úrgangsflokka á tveggja vikna fresti.
Nýtt sorphirðudagatal hefur þegar verið gert aðgengilegt á vefsíðu Kópavogsbæjar.
Skoða uppfært sorphirðudagatal
Ef spurningar vakna eða eitthvað má betur fara, vinsamlegast sendið ábendingu eða hafið samband við Þjónustumiðstöð í síma 441 9000.
Líkt og áður skal líta á sorphirðudagatalið sem viðmiðunardagatal. Veðurfar og aðrir ófyrirséðir þættir geta haft áhrif á losun en almennt ætti ekki að skeika meiru en ½ til 1 degi á sorphirðu milli hverfa. Unnið verður að ná niður töfum hratt og örugglega.
Lesa meira um sorp og endurvinnslu í Kópavogi
Djúpgámar eru útbúnir magnskynjurum og fylgja ekki áætlun sorphirðudagatalsins. Djúpgámar verða áfram tæmdir af Íslenska Gámafélaginu.