- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Ljóðstafur Jóns úr Vör var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 21. janúar.
Ljóðstafinn hlaut Vala Hauksdóttir fyrir ljóðið Verk að finna.
Önnur verðlaun hlaut Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir fyrir ljóðið Skyggnishnignun og þriðju verðlaun hlaut Ragnheiður Harpa Leifsdóttir fyrir ljóðið Deig.
Að auki hlutu sex ljóð sérstaka viðurkenningu dómnefndar. Í móðurkviði eftir Draumeyju Aradóttur, Straumönd eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur, Stríðsyfirlýsing eftir Höllu Þórðardóttur, Fálæti og Legið yfir gögnum eftir Jón Knút Ásmundsson og Segðu mér eitthvað fallegt eftir Ragnar Jónasson.
270 ljóð bárust í keppnina í ár en ljóðin mega ekki hafa birst áður og skulu send inn undir dulnefni höfundar. Dómnefnd skipuðu Kristín Svava Tómasdóttir (formaður), Þórdís Helgadóttir og Þórður Sævar Jónsson.
Úrslit í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs
Við sama tilefni voru veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs og var dómnefnd sú sama.
Þar hlaut fyrstu verðlaun Alexander Aron Jörgensson í 10. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Appelsínur en Alexander hlaut einnig fyrstu verðlaun í sömu keppni fyrir réttu ári. Önnur verðlaun hlaut Inga Bríet Valberg, 5. bekk í Snælandsskóla fyrir ljóðið Ég og hún og þriðju verðlaun hlaut Sigurlín Viðarsdóttir, 10. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Mjöll, Fönn og Drífa.
Sérstakar viðurkenningar hlutu þau Angelo Mikael Korale Arachchige, 9. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Batmann, Evelina Sóley Arthur, 7. bekk í Kársnesskóla fyrir ljóðið Fuglaljóð, Elsa Hlín Sigurðardóttir, 9. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Sumarið, Ríkharður Óli Brynjarsson, 10. bekk í Lindaskóla fyrir ljóðið Að vera ég, Sóldís Anahita Shahsafdari, 6. bekk í Álfhólsskóla fyrir ljóðið Úti og Alexander Aron Jörgensson fyrir ljóðið Í öðrum heimi.
Um Völu Hauksdóttur
Vala Hauksdóttir (f.1992) hefur skrifað smásögur, ljóð, dagbækur og hugleiðingar frá barnsaldri og stundar nú meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands. Að loknu námi við Fjölbrautaskóla Suðurlands nam Vala ferðamálafræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Limerick í Írlandi. Hún starfar nú sem verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Suðurlands og hefur unnið fjölbreytt störf tengd ferðaþjónustu í rúman áratug. Vala er grúskari með ástríðu fyrir íslenskri náttúru, menningu og sögu og var einn höfunda að samskotsverkinu Einangrun sem Lakehouse Theatre Company stóð fyrir á Listahátíð í Reykjavík árið 2021. Vala er nýstigin inn í heim ritlistarinnar af fullum þunga og stefnir á frekari ritstörf á næstu misserum.
Sigurljóð Ljóðstafs Jóns úr Vör 2024
Verk að finna
Hrífuskaftsflís
í hengibrúnni milli bendifingurs og þumals.
Útsaumsnál
undir baugfingursnögl.
Skeljasandur
í hælsæri.
Hrossafælir
sem skýst með þyt undan þúfu
fall
að missa andann -
sortna fyrir augum
í lyngi.
Sælan er skortur
á öllu nema tíma
til verkja.
Hamingjan
er sigg.
Vala Hauksdóttir
Umsögn dómnefndar um sigurljóðið
Upphafslínur ljóðsins slá tóninn: einföld en áhrifarík mynd af flís sem gengur inn í hold. Myndirnar sem brugðið er upp í ljóðinu af aðskotahlutum sem særa líkamann eru hárnákvæmar, tálgaðar og allt að því óþægilegar. Agað formið kallast á við efniviðinn og ljóðskáldið teflir saman mýkt og hörku af miklu listfengi. Húðin verður tákn fyrir aðlögunarhæfni, þrautseigju og umbreytingarmátt manneskjunnar. Í upphafi ljóðsins er húðin mjúk og næfurþunn og það þarf lítið til að raska ró hennar; flís, sandkorn, nálarodd, en í fyllingu tímans breytist húðin í sigg, ekkert bítur á henni lengur, þar má finna hamingju og sátt. Ljóðið er hugleiðing um líkama og meðvitund, sársauka og erfiði, og þau spor sem lífsreynslan skilur eftir sig. Þetta er texti sem má og þarf jafnvel að lesa ítrekað og leitar lengi á huga lesandans.
Um Ljóðstaf Jóns úr Vör
Ljóðstafur Jóns úr Vör er haldinn af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar en efnt var til samkepninnar árið 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör (1917- 2000. Verðlaunahafar hljóta peningaverðlaun og sigurskáldið hlýtur til varðveislu í eitt ár göngustaf Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali.