Patrekur Leó sigraði Stóru upplestrarkeppnina

Patrekur Leó Unnarsson vann Stóru upplestrarkeppnina í Kópavogi, í öðru sæti var Emma Guðrún Árnadó…
Patrekur Leó Unnarsson vann Stóru upplestrarkeppnina í Kópavogi, í öðru sæti var Emma Guðrún Árnadóttir úr Vatnsendaskóla, og í þriðja sæti hafnaði Margrét Fjóla Erlingsdóttir frá Smáraskóla.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi fór fram í Salnum miðvikudaginn 26. mars. Þar öttu kappi 18 nemendur úr níu grunnskólum bæjarins, og sigraði Patrekur Leó Unnarsson frá Salaskóla keppnina. Í öðru sæti var Emma Guðrún Árnadóttir úr Vatnsendaskóla, og í þriðja sæti hafnaði Margrét Fjóla Erlingsdóttir frá Smáraskóla.

Áróra Martinsdóttir Kollmar úr Kársnesskóla fékk sérstakt hrós fyrir frumsamið ljóð sem hún flutti, og Jón Reykdal Snorrason fékk einnig hrós fyrir framúrskarandi flutning á ljóði í þriðja hluta keppninnar.

Stóra upplestrarkeppnin var nú haldin í 28. sinn í Kópavogi en fagnar 29 ára afmæli í ár. Keppnin er ávallt sett á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, og hefur það að markmiði að efla vandaðan upplestur og framburð meðal nemenda.

Keppendur fluttu fyrst valinn kafla úr sögunni Draumurinn eftir Hjalta Halldórsson, síðan ljóð um íslenska náttúru eftir ýmsa höfunda og að lokum ljóð að eigin vali. Allir þátttakendur fengu viðurkenningu, bók og blóm að gjöf, auk þess sem peningaverðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin.

Nemendur úr Skólahljómsveit Kópavogs fluttu fallega tónlist í upphafi athafnar og á meðan dómnefndin var að störfum. Allir keppendur stóðu sig með prýði og gerðu dómarar sérstaklega að því skóna hversu erfitt var að velja úr hópnum, sem sýnir hve vel nemendur höfðu undirbúið sig í skólunum sínum áður en til lokahátíðarinnar kom.