Opnað fyrir tilboð í lóðir í Vatnsendahvarfi

Vatnsendahvarf er nýtt hverfi í Kópavogi.
Vatnsendahvarf er nýtt hverfi í Kópavogi.

Opnað hefur verið fyrir tilboð í lóðir í þriðja og síðasta áfanga í Vatnsendahvarfi. Í þriðja áfanga verður úthlutað lóðum fyrir einbýlishús, parhús, raðhús og fjölbýli. Hægt er að skila inn tilboðum í fimm vikur, frá 3. apríl til  8. maí, kl. 14.00 í gegnum útboðsvef Kópavogsbæjar, Tendsign.is.

„Við erum mjög spennt að fá nýtt hverfi í Kópavoginn og höfum fundið það að það er mikill áhugi, enda góð staðsetning á frábærum útsýnisstað í nálægð við mikla náttúrufegurð. Hverfið verður ekki þétt byggt og gert ráð fyrir fallegum grænum svæðum sem flæðir vel í gegnum hverfið. Áhersla er lögð á fjölbreytta byggð í Vatnsendahvarfi með góðum samgöngutengingum fyrir alla ferðamáta. Þá munu íbúar njóta góðs af þeirri þjónustu sem fyrir er í nærumhverfinu auk þess sem reistur verður leikskóli og grunnskóli fyrir 1. til 4. bekk í þessu nýja hverfi.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Í Vatnsendahvarfi verða 500 íbúðir í fjölbýli og sérbýli og fellur byggðin vel að nágrenninu. Lögð er áhersla á sjálfbæra og umhverfisvæna byggð og góðar samgöngutengingar fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur.

Stefnt er að því að lóðir í þriðja áfanga verði byggingarhæfar 2026.

Nánar um Vatnsendahvarf og úthlutun

Haldinn verður kynningarfundur 10. apríl fyrir þau sem þurfa nánari upplýsingar og aðstoð um Tendsign. Fundurinn verður haldinn að Digranesvegi 1, í húsnæði Bæjarskrifstofa frá 16.15 til 17.15.