- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Haldið verður upp á 17. júní með glæsibrag í Kópavogi og er boðið upp á dagskrá á nokkrum stöðum í bænum. Dagskráin ber svip af 80 ára afmæli lýðveldisins og er boðið upp á hátíðardagskrá í andyri Salarins af því tilefni klukkan eitt. Skemmtidagskrá er bæði á Rútstúni og við Versali frá tvö til fjögur en leiktæki og hoppukastalar opna klukkan tólf. Einnig er dagskrá við Menningarhús bæjarins. Boðið verður upp á fullveldisköku á öllum hátíðarsvæðum.
Dagskrá 17. júní í Kópavogi
10.00: Kópavogsvöllur: 17.júní hlaup frjálsíþróttadeildar Breiðabliks fyrir börn í 1.til 6. bekk.
12.00-17.00: Rútstún og Versalir: Hátíðarsvæði opin með hoppukastölum, leiktækjum og andlitsmálun.
12.00-16.00: Undirgöngin við Hamraborg: Graffiti-djamm.
13.-13.30: Salurinn, andyri: Söngsveitin Fílharmónía syngur ættjarðarlög og flytur lag Atla Ingólfssonar við ljóð Þórarins Eldjárns, Ávarp fjallkonunnar, sem samið var í tilefni afmælisins. Þar verður hægt að nálgast bókina Fjallkonan „Þú ert móðir vor kær,“ sem forsætisráðuneytið gefur út í ritstjórn Silju Aðalsteinsdóttur.
13.30: MK: Skrúðganga með skólahljómsveit Kópavogs og Skátunum í broddi fylkingar hefst frá MK og lýkur Á Rútstúni.
13.30.-16.00: Menningarhúsin í Kópavogi, útisvæði: BMX Brós koma fram kl. 13.30. Einnig koma fram Hringleikur, Krakkahestar, Dansskóli Birnu Björns og Skapandi sumarstörf. Þá er Hjálparsveit skáta með tækjasýningu við menningarhúsin.
14-16.00: Skemmtidagskrá á Rútstúni: Fram koma fjallkona Kópavogs, leikhópurinn Lotta, Gunnar Helgason og Valgerður Guðnadóttir, Idol stjörnur, Jóhanna Guðrún, Aron Can og VÆB. Kynnar: Eva Ruza og Hjálmar Örn.
14.-16.00: Skemmtidagskrá við Versali: Fram koma leikhópurinn Lotta, Gunnar Helgason og Valgerður Guðnadóttir, Idol stjörnur, Jóhanna Guðrún, Aron Can og VÆB. Kynnar : Saga Garðars og Snorri Helga.