Skólasetning í grunnskólum

Heildarfjöldi nemenda er rétt um 5000.
Heildarfjöldi nemenda er rétt um 5000.

Skólasetning í grunnskólum Kópavogsbæjar verður föstudag 23. ágúst en kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudag 26. ágúst.

 

454 börn hefja skólagöngu í 1. bekk í grunnskólum Kópavogs núna í ágúst. Grunnskólar Kópavogs eru tíu talsins og eru Hörðuvallaskóli, Kóraskóli, Salaskóli, Lindaskóli, Snælandsskóli, Kársnesskóli, Kópavgosskóli, Vatnsendaskóli, Smáraskóli og Álfhólsskóli. Heildarfjöldi nemenda er rétt um 5000.

 

Um 1000 starfsmenn vinna í grunnskólum Kópavogs en það eru grunnskólakennarar, leiðbeinendur og stuðningsfulltrúar.

 

Við minnum ökumenn á að aka varlega þegar ungir nemendur fara að ganga og hjóla í skólann.

 

Upplýsingar um fyrirkomulag er að finna á vefsíðum skólanna.