Útboðskerfi kynnt vegna lóða í Vatnsendahvarfi

Vatnsendahvarf er nýtt hverfi í Kópavogi.
Vatnsendahvarf er nýtt hverfi í Kópavogi.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um lóðir í Vatnsendahvarfi. Af því tilefni verður kynningarfundur um útboðskerfi Kópavogs, Tendsign, í Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 30.janúar.

Fundinum verður streymt - smella hér til að fylgjast með.

 

Á fundinum gefst einstaklingum kostur á því að læra á notkun kerfisins. Fundurinn fer fram í Huldustofu á þriðju hæð Bókasafns Kópavogs. Hann hefst kl. 16.00 og stendur til 18.30. 

Opnað var fyrir tilboð í lóðir í öðrum áfanga úthlutunar í Vatnsendahvarfi 23. janúar og er hægt að skila inn til 20.febrúar . Í öðrum áfanga verður úthlutað lóðum fyrir einbýlishús, parhús, klasahús og fjölbýli. Gefinn verður fjögurra vikna frestur, frá því að opnað verður fyrir tilboð í útboðskerfinu Tendsign.is, til þess að skila inn tilboðum.

Í Vatnsendahvarfi verða 500 íbúðir í fjölbýli og sérbýli og fellur byggðin vel að nágrenninu. Lögð er áhersla á sjálfbæra og umhverfisvæna byggð og góðar samgöngutengingar fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur.

Nánar um Vatnsendahvarf