- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Leikskólinn Álfaheiði tók á móti áttunda grænfánanum á Degi umhverfisins, 25. apríl.
Eins og segir í frétt á vef leikskólans:
"Í dag tókum við á móti áttunda grænfánanum í sól og blíðu á Degi umhverfisins og afmælisdegi grænfánans. Við höfum flaggað grænfánanum frá árinu 2008 og á tveggja ára fresti þarf að sækja um endurnýjun grænfánans til Landverndar með því að sýna fram á að skrefunum sjö sem umhverfisstarfið byggist á sé viðhaldið.
Grænfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Á síðasta tímabili unnum við með þemun átthagar og landslag og hnattrænt jafnrétti. Næstu tvö árin ætlum við að leggja áherslu á neyslu og úrgang og átthaga og landslag. Umhverfissáttmáli leikskólans, Okkur þykir vænt um jörðina lýsir í stuttu máli heildarstefnu skólans í umhverfismálum, umhverfismennt og framtíðarsýn og var sáttmálinn ákveðin á umhverfisfundi elstu barna leikskólans."
Til hamingju :)