- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Námskeið fyrir grunnskólakennara í Kópavogi voru haldin í áttunda skipti en þau hafa verið haldin í aðdraganda skólasetningar síðan 2017 í þessu formi. Dagskráin stóð yfir í fjóra daga frá 9:00 - 16:00 en síðasti dagur námskeiðanna var miðvikudagur 14. ágúst. Öll námskeið fóru fram í Salaskóla nema annað væri tekið fram.
Endurmenntun er í öndvegi í upphafi nýs skólaárs og fjölmörg námskeið voru í boði fyrir kennara. Hægt var að sækja bæði heilsdags- eða hálfsdagsnámskeið en námskeiðin voru 26 talsins. Meðal annars gafst kennurum færi á að sækja námskeið um barnasáttmálann, ADHD í skólastofunni, skynvænt skólaumhverfi og inngildingu hinsegin nemenda í grunnskólum.
Í Kópavogi eru tíu grunnskólar og tveir sjálfstætt starfandi skólar. Grunnskólarnir eru Álfhólsskóli, Hörðuvallaskóli, Kóraskóli, Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Lindaskóli, Salaskóli, Smáraskóli, Snælandsskóli og Vatnsendaskóli. Skólasetning hjá grunnskólum í Kópavogi verður föstudaginn 23. ágúst.