Aðgengi að tunnum í frosti og snjó

Gæta verður að því að aðgengi að sorptunnum sé gott.
Gæta verður að því að aðgengi að sorptunnum sé gott.

Vegna veðuraðstæðna og mikillar frostatíðar eru bæjarbúar beðnir um að passa upp á að sorptunnur séu aðgengilegar. Nokkuð hefur verið um að hurðar á sorpgeymslum séu frosnar fastar eða ekki mokað frá sorpskýlum og -geymslum sem getur tafið sorphirðuna.

Einnig er bent á að sorp er ekki hirt þar sem lausamunir, til dæmis kerrur eða bifreiðar, hafa verið settir fyrir sorpgeymslur þannig að ekki er hægt að komast að þeim.

Helstu ástæður þess að seint gengur að losa tunnur eru:

  • Ekki er búið að moka frá tunnum svo erfitt er að ná í þær.
  • Frosnar hurðar á sorpgeymslum.
  • Bílar eða kerrur standa í vegi fyrir aðgengi að sorptunnum. Í slíkum tilvikum eru sorptunnur ekki tæmdar.