- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Foreldrum barna í Kópavogi sem eru að hefja leikskólagöngu í haust var í liðinni viku boðið til fræðslu um líf og nám ungra barna í leikskóla. Á fundunum er farið yfir skipulag leikskólanna, kennslu, útiveru, mataræði og helstu áherslur leikskóla í Kópavogi. Góð mæting var á fundina og foreldrar ánægðir með framtakið. Þetta er í þriðja sinn sem svona fundir eru haldnir en það er leikskóladeild Kópavogsbæjar sem skipuleggur þá.