- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Lindaskóli varð Norðurlandameistari í skólaskák um helgina og Vatnsendaskóli fékk bronsið.
Skólarnir voru þátttakendur á Norðurlandamótinu í skák sem haldið var í Danmörku helgina 20. til 22. janúar.
Sveit Lindaskóla voru fulltrúar Íslands í flokki þrettán ára og yngri og unnu þau sinn riðil og þar með Norðurlandameistaratitilinn í skólaskák.
Sveit Vatnsendaskóla voru fulltrúar Íslands í flokki yngri en sautján ára og lentu í þriðja sæti í sínum riðli.
Lið Lindaskóla skipuðu: Birkir Hallmundarson, Sigurður Páll Guðnýjarson, Engilbert Viðar Eyþórsson, Örvar Hólm Brynjarsson og Nökkvi Hólm Brynjarsson.
Lið Vatnsendaskóla skipuðu: Mikael Bjarki Heiðarsson, Tómas Möller, Jóhann Helgi Hreinsson, Arnar Logi Kjartansson og Guðmundur Orri Sveinbjörnsson .
Það má með sanni segja að skólar Kópavogs hafi staðið sig með prýði á mótinu sem verður haldið að ári á Íslandi.