- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna fjölbreytt og skemmtileg frístunda, - leikja - og íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Námskeið á vegum frístunda - og íþróttadeildar verða m.a. hjóla- og ævintýranámskeið, smíðavöllur, skapandi kvikmyndagerð og siglinganámskeið. Sumarstarf í frístundaklúbbnum Hrafninum er fyrir börn og unglinga með sérþarfir og atvinnutengt frístundaúrræði verður fyrir ungmenni með sérþarfir á aldrinum 17 til 24 ára í starfs- og frístundaklúbbnum Tröð.
Götuleikhús Kópavogs og Skapandi sumarstörf er vinnutengt unglinga - og ungmennastarf og munu þau glæða bæinn leik- og tónlistarlífi með ýmsum hætti.
Verið velkomin í litríkt sumarstarf í Kópavogi.
Helstu nýjungar í kynningarefni á sumarvefnum eru námskeið í kvikmyndagerð, sumaræfingar í siglingum hjá siglingafélaginu Ými og listtengd námskeið á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi. Leynileikhúsið býður upp á sumarnámskeið í leiklist og Hugarfrelsi er með námskeið í að efla styrkleika hvers og eins. Auk þess er meira framboð af sumarnámskeiðum í ágúst á vegum íþróttafélaga í Kópavogi. Kvikmyndanámskeið verður einnig í boði í Bókasafni Kópavogs.