Starfsemi gæsluvallar við Sólhvörf færð að Lækjarvelli

Lækjarvöllur við Dalsmára.
Lækjarvöllur við Dalsmára.

Eftir daginn í dag, þ.e. mánudaginn 29. júlí, verður starfsemi gæsluvallarins við leikskólann Sólhvörf færð til gæsluvallarins Lækjarvallar, Dalsmára 23. Þetta er vegna mjög lítillar aðsóknar að gæsluvellinum við Sólhvörf.

 

Gæsluvöllurinn Lækjarvöllur verður opinn til og með 7. ágúst. Opnunartími vallarins er á milli 9.00 og 12.00 fyrir hádegi og svo frá 13.00 til 16.00 eftir hádegi. Sími er 618 - 8541.

 

Gæsluvellir eru fyrir börn frá 20 mánaða aldri til 6 ára en börnin þurfa að vera vel búin því dvöl á gæsluvelli er útivera. Greitt er fyrir hverja heimsókn og er heimsóknargjald 500 kr.

 

Nánar um gæsluvelli