- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Ragna Fróðadóttir, textílhönnuður og myndlistarmaður er bæjarlistamaður Kópavogs 2019. Valið á Rögnu var kynnt við hátíðlega viðhöfn í Salnum í Kópavogi í dag.
Ragna mun sem bæjarlistamaður vinna í samvinnu við Menningarhúsin í Kópavogi að verkefnum og viðburðum sem tengjast textíl og umhverfissjónarmiðum. „Ég hef mikið velt fyrir mér umhverfisvitund í tengslum við textíl og hef áhuga á að tengja saman börn og eldri borgara í því verkefni. Samvinna kynslóða í handverki er mjög áhugaverð að mínu mati og verður spennandi að fá tækifæri til að vinna að henni og vil ég þakka lista- og menningarráði fyrir tilnefninguna sem bæjarlistamaður Kópavogs,“ segir Ragna.
Það var Karen E. Halldórsdóttir formaður lista- og menningarráðs sem kynnti tilnefninguna að viðstöddum Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra Kópavogs.
Ragna tekur við keflinu af Stefáni Hilmarssyni sem var bæjarlistamaður 2018.
Nánar um Rögnu
Ragna Fróðadóttir er fædd árið 1970. Hún hefur hefur verið búsett í Kópavogi um árabil verið langdvölum erlendis á því tímabili.
Textílhönnuðurinn og myndlistarmaðurinn Ragna Fróðadóttur vinnur á mörkum myndlistar og hönnunar. Hún lærði fata- og textílhönnun í París á árunum 1992-1995 og nam síðan við textíldeild Myndlista- og Handíðaskólann í Reykjavík 1996-1998. Ragna býr yfir víðtækri reynslu úr myndlistar- og hönnunarheiminum. Í dag er hún deildarstjóri textíldeildar Myndlistaskólans í Reykjavík. Einnig kennir hún sjónræna rannsóknarvinnu og Trend Forecasting við fatahönnunardeild LHÍ og textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík. 2008-2015 bjó Ragna að stærstum hluta til í New York borg þar sem hún vann fyrir Lidewij Edelkoort, einn þekktasta futurista hönnunarheimsins. Hún starfaði þar sem ráðgjafi og verkefnastjóri, ásamt því að reka Bandaríkjadeild Trend Union - fyrirtæki Lidewij Edelkoort. Á árunum 2012-2014 bjó Ragna einnig í Berlín og skipti tíma sínum á milli NYC og Berlín.
Þar var hún meðal annars sýningarstjóri hönnunar- og listsýningarinnar Tölt-Inspiration Islandspferd. Það var viðamikið sýningar verkefni á vegum Sendiráðs Íslands sem var sett upp í tengslum við Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Berlín 2013. Sýningin var síðar sett upp víðar sem farandsýning – meðal annars í Norræna húsinu í Reykjavík. Í tæp 10 ár rak Ragna eigin vinnustofu og verslun í miðbæ Reykjavíkur og hannaði fatalínu undir nafninu Path of Love Design. Á þeim tíma tók hún þátt í fjölda sýninga bæði hérlendis og erlendis og hannaði fatalínur og textíl fyrir einstaklinga og hópa. Ragna hefur skipulagt alþjóðlegar ráðstefnur bæði á Íslandi, í New York og Þýskalandi. Nýverið skipulagði hún ráðstefnuna Arfleifð mætir framtíð, í tengslum við fund Norrænu textílsamtakanna – NTA - á Íslandi. Ráðstefnan var styrkt af Reykjavíkurborg og Nordisk Kulturfond og var jafnframt hluti af dagskrá Hönnunarmars 2019.