- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Menningarhúsin í Kópavogi bjóða skemmtilegra dagskrá í haustfríi skólanna í bænum. Í Bókasafni Kópavogs verður brúðusýning og bíó, Gerðarsafn býður upp á námskeið í skúlptúr og Náttúrufræðistofa Kópavogs dregur fram smásjána.
Leikurinn hefst í Bókasafni Kópavogs laugardaginn 24. október en þá verður boðið upp á brúðuleikhús klukkan 13 í Lindasafni og klukkan 15 í Hamraborg. Harry Potter maraþon fer fram í Hamraborg á mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október þegar sýndar verða fyrstu þrjár myndirnar um galdrastrákinn.
Harry Potter og viskusteinninn verður sýnd klukkan 11 á mánudag, Harry Potter og leyniklefinn verður sýnd á þriðjudag klukkan 11 og Harry Potter og fanginn frá Azkaban verður sýnd á þriðjudag klukkan 14.00. Boðið verður upp á popp með bíóinu. Þá verða spil fyrir krakka á öllum aldri aðgengileg á safninu.
Gerðarsafn býður upp á ókeypis tveggja daga SKÚLPTÚR námskeið fyrir 8-12 ára krakka. Námskeiðið fer fram í haustfríi skóla Kópavogsbæjar - mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október kl. 13-15. Linn Björklund myndlistarmaður leiðir námskeiðið. Litið verður inn á SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR sýningu Baldurs Geirs og Habbyjar Oskar og rætt um höggmyndir og ólíkar hugmyndir í skúlptúr.
Á listasmiðju verða gerðir skúlptúrar innblásnir af sýningunum og munu skúlptúrarnir breytast á meðan á námskeiðinu stendur. Námskeiðinu lýkur á sýningu á verkunum í Stúdíó Gerður á neðri hæð safnsins. Ókeypis inn - allir velkomnir
Námskeiðið tekur um tvær klukkustundir hvorn dag og er sniðið að krökkum á aldrinum 8-12 ára.
Skráning fer fram í gerdarsafn@kopavogur.is.
Í Náttúrufræðistofu Kópavogs verður smásjáin dregin fram dagana 24.-27. október og geta börn og fullorðnir skoðað dýr í smásjánni og fræðst nánar um þau.
Börn og fullorðnir eru hvattir til að nýta haustfríið til heimsóknar í menningarhús Kópavogs sem standa öll í þyrpingu við Hamraborg í Kópavogi.