- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Mælaborð til að fylgjast með líðan barna í Kópavogi er tilnefnt til verðlauna á alþjóðlegri ráðstefnu Unicef sem fram fer í október. Mælaborðið sem er hluti af innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi er þróað í Kópavogi en unnið í samstarfi við félagsmálaráðuneytið og Unicef á Íslandi.
Kosið er á milli tilnefndra verkefna og geta áhugasamir tekið þátt í þeirri kosningu.
Markmið mælaborðsins er að fá fram fram betri mynd af almennri stöðu barna í samfélaginu hverju sinni og beina sjónum stjórnvalda að verkefnum sem brýnt er að takast á við og forgangsraða. Þetta er er með söfnun og greiningu tölfræðigagna sem sett eru upp í mælaborð.
Mælaborðið er í þróun hjá Kópavogsbæ en stefnt er að því að það verði nýtt á landinu öllu og geti þannig ýtt undir aukið og markvissara samstarf á milli sveitarfélaga sem tryggir börnunum betri þjónustu.
Kópavogsbær skilaði inn myndbandi um verkefnið fyrir ráðstefnuna, það má skoða á hlekknum hér að ofan en einnig með því að smella hér: