- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Nýju verkefni, Virkni og vellíðan, verður hleypt formlega af stokkunum á morgun, 1.október, en það er hluti af heilsueflingu eldri borgara í Kópavogi. Verkefnið er unnið í samstarfi UMSK, þriggja stærstu íþróttafélaganna í Kópavogi, Gerplu, Breiðabliks og HK og Kópavogsbæjar.
Virkni og vellíðan miðar að því að styrkja líkamlega, andlega og félagslega heilsu eldri borgara í Kópavogi.
Framboð fjölbreyttra námskeiða í hreyfingu fyrir 60 ára og eldri verður aukið til þess að koma á móts við hæfi og getu sem flestra. Jafnframt verða skipulagðar ferðir frá félagsmiðstöðvum eldri borgara í íþróttahús íþróttafélaganna, eldri borgurum að kostnaðarlausu.
„Með verkefninu er verið að bregðast við óskum um aukinn stuðning við íþróttastarf eldri borgara. Þá sýna rannsóknir að mikið forvarnargildi er fólgið í skipulagðri hreyfingu eldri borgara og félagslegri virkni. Það er því til mikils að vinna að fjölga í hópi eldri borgara sem geta stundað heilsurækt við hæfi,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.
Kynningarfundir verða haldnir í Kórnum í Kópavogi kl. 17.00 og í Fífunni klukkan 20.00. Fundinum sem haldinn er klukkan 17.00 verður streymt á netinu. Boðið verður upp á skráningu í þátttöku í verkefninu í tengslum við kynningarfundina en einnig er hægt að nálgast skráningarformið á Facebook-síðu verkefnisins.
Þess má geta að Virkni og vellíðan er unnið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík sem mun sjá um mælingar á árangri heilsueflingar hjá íþróttafélögunum.
Virkni og vellíðan er hluti af aukinni áherslu Kópavogsbæjar á heilsueflingu eldri borgara. Fyrr í ár tók heimaþjónusta velferðarsviðs upp nýtt verkefni í velferðatækni sem heitir DigiRehab. Í því felst að heimahreyfing og virkni eldri borgara sem dvelja mikið heima fyrir er efld með aðstoð starfmanna heimaþjónustu.
Þessi tvö verkefni eru meginstoðir aukinnar áherslu á heilsueflingu eldri borgara í Kópavogi. Markmiðið er að byggja brú milli meginstoðanna þannig að eldri borgarar í heimaþjónustu fái það góða hreyfifærni og styrkingu í gegnum DigiRehab að þeir geti með tímanum færst yfir í Virkni og vellíðan og njóti þar viðeigandi stuðnings og skipulagðrar hreyfingar við hæfi.
Nánar um fund og skráning á viðburð