- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Stefnt er á að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði boðin út í ágúst næstkomandi. Skólinn verður reistur úr KLT timbureiningum. Byggingin verður Svansvottuð og verður þá fyrsta skólahúsnæðið á landinu sem er Svansvottað. Byggingin mun hýsa leikskóla og grunnskólanemendur á fyrsta skólastigi.
Verkfræðistofan Mannvit sá um heildarhönnun skólans að loknu útboði en Batteríið og Landslag ehf. voru í teyminu með Mannviti. Hönnunarstjóri hönnunarteymisins var Jón Ólafur Ólafsson arkitekt. Nýr Kársnesskóli verður 5.750 m2 að stærð.
Framkvæmdaáætlun gerir ráð fyrir að verklok byggingarinnar verði í maí 2023.
Þar til nýr Kársnesskóli er risinn verða lausar skólastofur við Kársnesskóla Vallargerði nýttar fyrir starfsemi skólans en þær hafa verið í notkun undanfarin ár.
Kársnesskóli Skólagerði var rýmdur vegna umfangsmikilla rakaskemmda í febrúar 2017. Samþykkt var að stofna vinnuhóp um framtíðartíðarskipulag og þróun húsnæðis skólans. Í apríl 2018 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs að veita heimild til að bjóða út hönnun á nýju skólahúsnæði við Skólagerði og heimild til útboðs á niðurrifi á húsnæði Kársnesskóla, en það hafði verið dæmt ónýtt. Í október 2018 hófst niðurrif skólans sem lauk í ársbyrjun 2019. Jarðvinnuframkvæmdum vegna nýs Kársnesskóla lauk í byrjun árs 2020.