- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Menningarhúsin í Kópavogi iða af lífi á aðventunni og eru ókeypis jólalistasmiðjur og tónleikar í Bókasafni Kópavogs og Gerðarsafni, listasafni Kópavogs. Hin árlega jólalistasmiðja fer fram í Bókasafni Kópavogs, laugardaginn 12. desember, frá kl. 13 til 16:30 Í Kórnum í fyrstu hæð safnsins og á hverjum miðvikudegi spila nemendur Tónlistarskóla Kópavogs jólalög á annarri hæð bókasasafnsins kl. 16:30.
Alla aðventuna er jólakortasmiðja í Gerðarsafni á fyrstu hæð listasafnsins þar sem gestir og gangandi geta búið til sín eigin jólakort. Uppbókað er í námskeið Gerðarsafns í teikningu og bókagerð laugardaginn 12. desember.
Í Gerðarsafni hefur verið opnaður veitingastaðurinn Garðskálinn en opnunartími er frá kl. 11 til 17 alla daga nema mánudaga. Þá er safnið lokað.
Í Náttúrufræðistofu Kópavogs sem er í sama húsnæði og bókasafnið hafa dýrin klæðst í sitt fínasta púss og í Salnum eru fjölmargir jólatónleikar á aðventunni en nánari upplýsingar eru á vef Salarins, salurinn.is.