- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Hertar sóttvarnaráðstafanir taka gildi laugardaginn 31. október. Sömu reglur munu gilda um allt land. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur fram að smit í samfélaginu sé enn mikið, þrátt fyrir hertar sóttvarnaaðgerðir sem gripið var til 20. október síðastliðinn. Því sé hætta á að hópsýkingar brjótist út og valdi enn meira álagi á heilbrigðiskerfið sem sé mikið fyrir. Bent er á að Landspítali sé á neyðarstigi vegna mikils álags og að margvíslegri heilbrigðisstarfsemi hafi verið frestað til 15. nóvember. Mikið álag sé á þeim fimm farsóttarhúsum sem nú eru starfrækt og meira um veikindi meðal þeirra sem þar eru í einangrun en áður hefur verið í faraldrinum. Því er það mat sóttvarnalæknis að grípa þurfi til hertra aðgerða til að takmarka útbreiðslu veirunnar og koma þannig í veg fyrir alvarlegar afleiðingar af völdum COVID-19 og annarra sjúkdóma.
Reglugerð um samkomutakmarkanir vegna farsóttar
Minnisblað sóttvarnalæknis