- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi og Rauði krossinn í Kópavogi hljóta viðurkenningu jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogs árið 2015. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti viðurkenninguna í bæjarstjórnarsal Kópavogs. Félagasamtökunum var þakkað fyrir starf sitt við afhendinguna. „Samhugur, fordómaleysi og mannvirðing einkennir allt starf Mæðrastyrksnefndar í Kópavogi og framlag Rauða Krossins til að rjúfa félagslega einangrun, efla samkennd og virðingu fyrir mannlegu lífi innan bæjarfélagsins er ómetanlegt,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson við afhendinguna.
Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs veitir ár hvert viðurkenningu til stofnunar, einstaklings, félags eða fyrirtæksis sem unnið hafa að jafnréttis- og mannréttindamálum í Kópavogi.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs hefur starfað síðan á sjöunda áratugnum. Að henni standa kvenfélögin Dimma, Freyja og Kvenfélag Kópavogs og það eru konur frá þeim félögum sem leggja fram alla sjálfboðavinnu í sambandi við starfsemi nefndarinnar. Nefndin vinnur einnig í samstarfi við Rauða krossinn í Kópavogi. Nefndin hefur aðsetur í húsnæði Kópavogsbæjar í Fannborg.
„Þær konur sem standa að Mæðrastyrksnefnd Kópavogs vinna óeigingjarnt og þarft starf í þágu þeirra sem minna mega sín í samfélaginu. Aðstoðin er ekki bundin við kyn eða uppruna heldur veitt öllum þeim sem þurfa, án þess að farið sé í manngreiningarálit,“ segir meðal annars í rökstuðningi nefndarinnar.
Við nefndina starfa að jafnaði 12 konur sem allar gefa vinnu sína, formaður nefndarinnar er Anna Kristinsdóttir.
Rauði krossinn í Kópavogi er sérdeild innan Rauða kross Íslands, stofnuð árið 1958. Formaður deildarinnar er David Dominic Lynch og deildarstjóri er Silja Ingólfsdóttir. Deildin er öflug og árið 2014 voru yfir 300 sjálfboðaliðar starfandi. Deildin starfar að mannúðarmálum og margvíslegri aðstoð við þá sem búa við þrengingar og mótlæti í samfélaginu.
Í rökstuðningin nefndarinnar er Rauða krossinum þakkað sérstaklega fyrir framlag í undirbúningi komu sýrlenskra fjölskyldna í Kópavog. „ Framlag Rauða krossins í því samstarfi er afar mikilvægt. Rauði krossinn mun sjá um að innrétta íbúðir fólksins og sjálfboðaliðar munu mynda þétt stuðningsnet utan um fjölskyldurnar. Kópavogsbær kann Rauða krossinum miklar þakkir fyrir það lykilhlutverk sem sjálfboðaliðar þeirra gegna í móttökuverkefninu.