Bókabox slær í gegn

Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs og Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menni…
Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs og Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála.

Bókasafn Kópavogs opnaði nýverið Bókabox í Vallarkór 4. Bókaboxið, sem er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, verið notað afar mikið frá opnun þess í upphafi októbermánaðar. 

 „Móttökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum og greinilegt að Kópavogsbúar kunna að meta þjónustuna," segir Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.  „Við erum fyrsta bókasafnið á Íslandi að bjóða þessa viðbótarþjónustu við þá hefðbundnu þjónustu sem er á söfnunum sjálfum og stolt af því að vera í fararbroddi hér."

Boxið virkar eins og póstboxin sem hafa verið að spretta upp út um allt land á undanförnum árum þar sem hægt er að sækja pakka í box. Þetta er einföld leið fyrir lánþega safnsins að nálgast nýjustu og vinsælustu bækurnar, en í boxinu verða alltaf tíu nýir titlar, eins er hægt er að skila lánsbókum. Hægt er að taka frá bók og sækja hana í boxið. Bækurnar eru þá fráteknar á leitir.is og kemur starfsfólk bókunum í Bókaboxið. Bókinni verður haldið í fjóra sólarhringa eftir að hún er komin í boxið. 

Bókasafn Kópavogs er eitt glæsilegasta bókasafn landsins og er einn af máttarstólpum samfélagsins í Kópavogi. Það eru um 800 gestir sem sækja safnið daglega og fer gestum fjölgandi með hverju ári. Safnið býður upp á fjölda viðburða auk hefðbundinnar þjónustu og hefur verið leiðandi í tækniþróunum til að mynda að bjóða upp á greiðslugátt í gegnum sjálfsafgreiðsluvélar.

Bókaboxið er staðsett í Vallakór 4 (í sama húsi og velferðarsvið Kópavogsbæjar og Krónan) og er opið kl. 9:00-21:00 alla daga vikunnar.