- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Blásarasextett Skólahljómsveitar Kópavogs fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi atriði í miðnámi á Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna. Sextettinn skipa sex stúlkur úr 8. og 10. bekk grunnskóla. Þær heita Auður Skarphéðinsdóttir, Björg Steinunn Gunnarsdóttir, Helga Mikaelsdóttir, Herdís Ágústa Linnet, Ingibjörg Ragnheiður Linnet og Katrín Guðnadóttir.
Nótan var haldin hátíðleg í Hörpu síðastliðinn sunnudag. Kópavogur átti þar fjóra fulltrúa, tvo frá Tónlistarskóla Kópavogs og tvo frá Skólahljómsveitinni.
Auk Blásarasextettsins léku sex nemendur í grunnnámi saman á píanó lagið Litla spörfuglinn, þau heita Andri Snær Valdimarsson, Andrea Ósk Jónsdóttir, Helena Rós Jónsdóttir, Ingibjörg Brynja Finnbjörnsdóttir, Katrín Arnardóttir og Þórhildur Anna Traustadóttir. Þá fluttu Hjördís Anna Matthíasdóttir og Vilhjálmur Guðmundsson Lærdómsblús við undirleik Matthíasar V. Baldurssonar. Loks lék Anna Elísabet Sigurðardóttir á víólu við undirleik Evu Þyri Hilmarsdóttur. Anna Elísabet flutti 1. þátt Märchenbilder eftir Schumann en hún tók þátt í flokki nemenda í framhaldssnámi.
Á hátíðinni komu fram fjöldi atriða frá tónlistarskólum víðs vegar að af landinu en keppt var um viðurkenningargripi í tíu mismunandi flokkum. Í valnefnd sátu þau Helga Þórarinsdóttir, Martial Nardeau og Þóra Einarsdóttir.