Fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn fundar í Molanum, Hábraut 2.
Bæjarstjórn fundar í Molanum, Hábraut 2.

Bæjarstjórn Kópavogs fundar í dag og hefst fundur bæjarstjórnar kl. 16.00.

Fundarstaður Bæjarstjórnar er Hábraut 2, í Molanum. Streymt er frá fundinum og er streymi aðgengilegt á forsíðu vefs.

Að jafnaði fundar bæjarstjórn annan og fjórða þriðjudag í hverjum mánuði, nema í júlí og ágúst og desember. Upptökur má nálgast á síðunni upptökur af fundum og fundargerðir eru aðgengilegar á síðunni fundargerðir bæjarstjórnar.

Fundir haustið 2024 eru sem hér segir

  • 27. ágúst
  • 10. og 24. september
  • 8. og 22. október
  • 12. og 26. nóvember
  • 10. desember