- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Auðbrekkusvæðið í Kópavogi fær nýja ásýnd og nýtt hlutverk þegar skipulag svæðisins verður tekið til endurskoðunar. Svæðið, sem afmarkast af Nýbýlavegi og Hamraborg, er skilgreint sem þróunarsvæði í Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Haustið 2014 var efnt til hugmyndasamkeppni á vegum Kópavogsbæjar og Lundar fasteignafélags ehf. um framtíðarmöguleika Auðbrekkusvæðisins. ASK arkitektar voru hlutskarpastir í hugmyndasamkeppninni en í hugmyndum ASK eru gerðar tillögur að mögulegu skipulagi svæðisins með blandaða byggð atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
Markmið samkeppninnar var að fá tillögur fagmanna að því hvernig hverfið, sem er afar miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, getur breytt um ásýnd og fengið nýtt hlutverk.
Hugmyndir ASK náðu þannig best þeim markmiðum sem lagt var upp með að mati rýnihóps, sem skipaður var starfsmönnum skipulags- og byggingardeildar bæjarins og fasteignafélagsins Lundar ehf. Lundur fasteignafélag ehf. er stærsti fasteignaeigandi á svæðinu og því varð hugmyndasamkeppnin til í samstarfi félagsins og Kópavogsbæjar.
„Í nýjum hugmyndum um svæðið er meðal annars fyrrum athafnasvæði Toyota tekið til gagngerrar endurskoðunar. Hér mun verða til spennandi hverfi þar sem fléttast saman íbúabyggð og atvinnusvæði. Breytingin er þegar hafin eins og sést á Nýbýlavegi þar sem sprottið hafa upp verslanir og veitingastaðir en í væntanlegu deiliskipulagi munum við taka skrefið enn lengra. Í Auðbrekkunni munu til dæmis verða til íbúðir í fyrrum atvinnuhúsnæði, þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja, líkt og þekkist í mörgum borgum erlendis,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar.
Næsta skref í framtíðarmótun svæðisins við Nýbýlaveg og Auðbrekku er að kynna niðurstöður hugmyndasamkeppninnar fyrir íbúum og hagsmunaaðilum á svæðinu. Efnt verður til fundar með þeim í janúar þar sem farið verður yfir hugmyndir ASK arkitekta og drög að skipulagslýsingu fyrir svæðið kynnt. Að loknum þeim fundi getur vinna við nýtt deiliskipulag svæðisins hafist.
Samkeppnin og þær tillögur sem þar komu fram verða öflugur hugmyndabanki fyrir áframhaldandi vinnu við skipulag svæðisins sem unnið verður í góðu samstarfi við alla hagsmunaðila og íbúa.
Auk ASK arkitekta voru valdar til þátttöku í hugmyndasamkeppninni arkitektastofunar H3, KRark, Apparat, T.ark og Yrki. Allar stofurnar skiluðu vel útfærðum en afar ólíkum hugmyndum um framtíð svæðisins.