Allir með

Allir með er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF .
Allir með er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF .

Íþróttafélög í Kópavogi taka þátt í verkefninu Allir með sem fer af stað í upphafi árs 2025. Markmiðið með verkefinu er að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþróttahreyfinguna, og að öll börn og ungmenni eigi þess kost að taka þátt í íþróttum í sínu nærumhverfi.

Verkefnið er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra) . Íþróttahreyfingin sér um framkvæmd verkefnisins sem verður unnið á tímabilinu 2023 – 2025. Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu.