Aðventuhátíð Kópavogs

Aðventuhátíð í Kópavogi.
Aðventuhátíð í Kópavogi.

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin með pompi og pragt, laugardaginn 30. nóvember. Ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin verða tendruð við hátíðlega athöfn þar sem jólasveinar bregða á leik, dansað verður í kringum jólatréð og fjöldi krakka í Kópavogi blása í lúðra og syngja falleg og skemmtileg jólalög.

Nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs flytja fallega jólatónlist á aðventutónleikum á bókasafninu. Í forsal Salarins mun bæjarlistamaður Kópavogsbæjar, Kristofer Rodriguez Svönuson, trommu- og slagverksleikari bjóða upp á jólajazz ásamt Daníel Helgasyni gítarleikara og Hannesi Helgasyni hljómborðsleikara.

Boðið verður upp á fjölbreyttar aðventusmiðjur frá klukkan 15. Pólsk brúðusmiðja, fóðurkönglagerð fyrir fugla, jólagjafasmiðjur, jólatónlist og lesið verður upp úr jóladagatali sem Eygló Jónsdóttir rithöfundur skrifaði upp úr hugmyndum barna í Kópavogi.

Systir jólasveinanna mætir með fullt af tröllafötum úr Grýluhelli og býður mannabörnum að klæða sig sem tröllabörn. Tröllastelpa kennir krökkum á öllum aldri að dansa við dillandi jólalög. Og að sjálfsögðu mæta jólasveinar á svæðið og leiða dans í kringum jólatréð ásamt vinkonu sinni henni Rófu.

Dagskrá:

Á útisvæði menningarhúsanna

15:00 - 16:30 Systir jólasveinanna mætir með fullt af tröllafötum úr Grýluhelli og býður mannabörnum að klæða sig sem tröllabörn.

15:00 - 16:30 Tröllastelpa kennir krökkum á öllum aldri að dansa við dillandi jólalög.

16:30 Jólalagasveifla með Skólahljómsveit Kópavogsbæjar og kórum úr Smáraskóla og Hörðuvallaskóla syngja jólalög.

17:00 Jólaljósin tendruð. Kynnar eru undraverur úr Jólalundi. Jólasveinar mæta og slá upp dansiballi í kringum jólatréð.

Bókasafn Kópavogs
15:00-16:30 Skreytum jólatré Gloríu
15:00-16:30 Jóladýr og jólaverur – föndur
15:00-16:30 Jólagjafasmiðja 11+ – þrívíddarpennar og perluarmbönd
15:15 / 15:45 / 16:15 Jólasögustund með Eygló Jónsdóttur
16:00 Nemendur í Tónlistarskóla Kópavogs spila jólalög
Jólaratleikur og innpökkunarstöð á opnunartíma safnsins.

Gerðarsafn
14:00-16:00 Pólsk brúðusmiðja
15:00-16:30 Dj. Sunna Ben þeytir jólaskífum og skemmtilegri músík á Krónikunni.

Sýningarnar Gerður grunnsýning, Óstöðugt land og Parabóla eru opnar frá 12:00 - 18:00

Náttúrufræðistofa
15:00-16:30 Fóðurkönglagerð fyrir fugla
Grunnsýning Náttúrufræðistofu verður opin frá 11:00 - 17:00.

Salurinn
15:00
Jólajazz bæjarlistamannsins
Kristófer Rodriguez Svönuson, slagverksleikari, Daníel Helgason, gítarleikari og Hannes Helgason, hljómborðsleikari.

Við hlökkum til að sjá ykkur í hátíðarskapi