![Ársreikningur Kópavogsbæjar 2017 er lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 24. apríl.](/static/news/xs/1524222963_merki_2017.jpg)
20.04.2018
Fréttir
Góð afkoma hjá Kópavogsbæ
Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar nam 2,2 milljörðum króna árið 2017. Það er tæpum tveimur milljörðum meira en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Skuldahlutfall bæjarins var 133% í árslok en gert hafði verið ráð fyrir 140%. Ársreikningurinn endurspeglar sterka fjárhagsstöðu bæjarfélagsins.