Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Fasteignaskrá geymir upplýsingar um allar lóðir og mannvirki sem á þeim standa.
Byggingarfulltrúi er ábyrgur fyrir að Þjóðskrá Íslands berist upplýsingar um lönd og lóðir. Því tilheyrir breytingar á þeim og mannvirkjum sem á þeim standa.
Opinber stærðaskráning lóða og húsa er í höndum byggingarfulltrúa og er skráning lóða birt í samræmi við mæliblöð. Mæliblaðagerð fyrir lóðir í eigu Kópavogsbæjar er í höndum skrifstofu umhverfissviðs.
Skráning húsa byggir einvörðungu á skráningartöflum sem eru hluti af aðalteikningum. Ef eigandi hefur athugasemdir við stærðarskráningu húss síns getur hann sótt um leiðréttingu á skráningu og sent með skráningartöflu/r og teikningu ef það á við.
Fasteignamat og brunabótamat er í umsjón Þjóðskrár Íslands sem annast fasteignaskrá.
Byggingarfulltrúi áritar eignaskiptayfirlýsingar áður en þeim er þinglýst, til staðfestingar á því að þær séu í samræmi við samþykktar teikningar og að þær séu unnar í samræmi við reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar. Byggingarfulltrúi tilkynnir Þjóðskrá um framvindu byggingarstiga.