- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 17. apríl 2023 var Lagt fram erindi frá byggingarfulltrúa dags. 14. mars 2023 þar sem umsókn Haraldar Ingvarssonar arkitekt um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Fornahvarf er vísað til skipulagsráðs. Á lóðinni í dag er íbúðarhús 144,6 m², geymsla 42,6 m² og hesthús 144 m². Samtals byggingarmagn á lóðinni 331,2 m². Í breytingunni felst að stækka íbúðarhúsið um 467 m² til norðurs á tveimur hæðum og kjallara ásamt úti sundlaug að sunnanverðu og áorðnar breytinga þar með talið nýtt gufubað og stækkun á sólskála. Áætlað er einnig að byggja 185,5 m² vinnustofu á norð-austur hluta lóðarinnar, tvöfaldan 56,3 m² bílskúr á suð-vestur hluta lóðarinnar og að breyta geymslu að hluta til í gestahús og stækka það um 5,4 m². Byggingarmagn á lóðinni eykst um 714,2 m² og mun því eftir breytinguna verða um 1050 m². Lóðin er 4800 m² mun því nýtingarhlutfall á lóðinni hækka úr 0,07 í 0,22 við breytinguna. Meðfylgjandi eru uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 10. janúar 2023, skýringarmyndir dags. 31. mars 2023 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 13. apríl 2023.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1 og 3 við Fornahvarf og nr. 2 við Dimmuhvarf. Jafnframt skuli leita umsagna Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Kynning hefst þann 5. maí 2023 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is föstudaginn 9. júní 2023.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin