- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er tillaga að breyttu deiliskipulagi hér með auglýst.
Skipulagsráð samþykkti á fundi 15. júlí 2024 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa breytt deiliskipulag Kaupavogstúns.
Í breytingunni felst að mörk deiliskipulagssvæðisins færast til suðurs og vestur og munu liggja að deiliskipulagssvæði nýs deiliskipulags göngu- og hjólastíga um Kópavogsháls. Ekki eru gerðar aðrar breytingar á deiliskipulaginu.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér breytt deiliskipulag.
Athugasemdum og ábendingum skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 935/2024, eigi síðar en 23. september 2024.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin