- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
"Í febrúar 2013 var stofnuð ný staða verkefnastjóra sem hefur stöðu og launasetningu sviðsstjóra hjá bænum. Óskað er eftir yfirliti og útskýringum á þeim verkefnum sem viðkomandi starfsmaður hefur unnið, lokið eða eru í vinnslu fyrir næsta fund bæjarráðs.
Guðríður Arnardóttir"
"Hvað líður svörum við fyrirspurnum undirritaðs um kostnað m.a. vegna brunatrygginga og fasteignagjalda á fasteignum sem eru ekki lengur til s.s. hesthúsa á Glaðheimasvæði?
Hvað líður svörum við fyrirspurnum undirritaðs um heildarkostnað vegna vöktunar og öryggisþjónustu á fasteignum í eigu bæjarins?
Hvað líður svörum við fyrirspurn um auðar íbúðir í Kópavogi sem eru í eigu Íbúðalánasjóðs og annara fjármálastofnana?
Hjálmar Hjálmarsson"
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar til úrvinnslu.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til úrvinnslu.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Lagt fram.
Lagt fram.
Lagt fram.
Lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til fjármála- og hagsýslustjóra til umsagnar.
Lagt fram.
Sviðsstjóri velferðarsviðs og lögfræðingur á velferðarsviði sátu fundinn undir þessum lið.
Lagt fram.
Hjálmar Hjálmarsson óskar eftir að eftirfarandi tillögur, sem bornar voru fram á fundi félagsmálaráðs, verði teknar til umræðu á næsta fundi bæjarstjórnar:
"1. Félagslegum leiguíbúðum verði fjölgað verulega hið fyrsta strax á þessu ári og því næsta.
2. Reglur um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis verði endurskoðaðar hið fyrsta til að mæta undangengnum verðlagsbreytingum, breytingum á íbúða og leigumarkaði og þeim breytingum sem hafa orðið á almennum kjörum fólks eftir bankahrun.
3. Kalla eftir umræðu og tillögum til að leysa yfirvofandi vanda í húsnæðismálum þ.e. hvernig sveitarfélagið getur tekið þátt í því að vinna bug á vandanum til framtíðar.
Starfsfólk Velferðarsviðs Kópavogsbæjar hefur fundið fyrir því undanfarin misseri að eftirspurn eftir félagslegri aðstoð hefur vaxið mikið frá íbúum sem áður hafa ekki þurft á styrkjum eða aðstoða að halda. Fólk sem er við góða heilsu og í fullri vinnu, fólk í framhalds og háskólanámi og fellur ekki undir hefðbundnar skilgreiningar Velferðarsviðsins um fólk sem á í félagslegum vanda. Í langflestum tilvikum er ástæða vandans dýrt íbúðarhúsnæði. Há húsaleiga eða mikil greiðslubyrði af húsnæðislánum.
Í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað undanfarin misseri um vanda Íbúðalánasjóðs, síhækkandi leiguverð á markaði og hrun fjármálakerfissins má hæglega draga þær ályktanir að framundan stefni í mikla kreppu á hinum almenna íbúðahúsnæðismarkaði. Eins og staðan er núna hefur ungt fólk sem er að koma úr námi eða hefja búskap hvorki efni á leigja eða kaupa íbúð. Hluti þessa hóps hefur fá úrræði önnur en flytjast úr landi eða leita á náðir hins opinbera. Þessi vandi mun vafalítið að stórum hluta lenda á sveitarfélögunum með einum eða öðrum hætti. Það er því nauðsynlegt fyrir sveitarfélagið Kópavog að grípa inn í og skoða með ábyrgum hætti hvernig hægt sé að bregðast við áður en í óefni er komið.
Aðgerðir til að mæta núverandi vanda í félagslega leiguíbúðakerfinu og uppsöfnuðum aðsteðjandi vanda í húsnæðismálum almennt.
Hjálmar Hjálmarsson"
Lagt fram.
Ólafur Þór Gunnarsson þakkar fyrir framlagt svar og óskar fært til bókar:
"Ég tel mikilvægt að sveitarfélagið setji sér viðmið og reglur eftir því sem lög leyfa um stöðu gáma í bænum.
Ólafur Þór Gunnarsson"
Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Tek undir bókun og óska jafnframt eftir því að Sambandi íslenskra sveitarfélaga verði sent erindi þess efnis að það beiti sér fyrir því að sveitarfélög fái úrræði til að takast á við lausafé sem skemmir ásýnd sveitarfélaga.
Ármann Kr. Ólafsson"
Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Lagt fram.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Mánaðarskýrslurnar hafa bætt upplýsingaflæði til bæjarfulltrúa og bæjarbúa með birtingu á heimasíðu bæjarins.
Ómar Stefánsson"
Lagt fram.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bendi á lið 7 í fundargerðinni og fagna fjölgun á notkun umhverfisvæns samgöngumáta í bænum.
Ólafur Þór Gunnarsson"
Lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að gefa Elmari Þór Erlendssyni og Erlendi Borgþórssyni kost á byggingarrétti á lóðinni Þrúðsölum 8.
Bæjarráð samþykkir að gefa North Team Invest kost á byggingarrétti á lóðinni Hafraþing 2-4.
Bæjarráð samþykkir að gefa Verkfræðistofu Kópavogs ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Hafraþing 6-8.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu framkvæmdaráðs.
Bæjarráð samþykkir að Guðrún Sylvía Pétursdóttir verði ein skráð lóðarhafi Hamraenda 21.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og starfsmannastjóra til umsagnar.