![Theodóra Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Guðrún Soffía Jónas…](/static/news/xs/spjaldtolvur_vatnsendaskoli3.jpg)
11.06.2015
Fréttir
Spjaldtölvur afhentar í Kópavogi
Kópavogsbær afhenti í dag 500 spjaldtölvur til kennara í grunnskólum bæjarins. Í byrjun næsta skólaárs verða fyrstu nemendatækin afhent og þegar innleiðingu lýkur haustið 2016 munu allir nemendur á mið- og unglingastigi í grunnskólum Kópavogs hafa spjaldtölvur til afnota.