- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Kópavogsbúar eru hvattir til að taka þátt í evrópsku samgönguvikunni sem hefst á sunnudag með hjólreiðaför sem endar í Árbæjarsafni. Hjólalest leggur af stað frá Hafnarfirði og Garðabæ og stoppar við Þinghólinn í Kópavogi kl. 12:25. Þar geta Kópavogsbúar bæst í hópinn. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri verður einnig með í för.
Bæjarstjóri mun taka á móti hópnum og setja vikuna formlega í Kópavogi og Hilmar Malmquist, forstöðumaður Nátturufræðistofu Kópavogs, mun segja frá Þinghólum og Kópavogsleirum.
Hjólalestin mun halda af stað kl. 12:45 alla leið á Árbæjarsafn.