- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Hin árlega forvarnarvika frístundadeildar fór fram í síðustu viku, en yfirskriftin í ár var Heilsa og Líðan. Unglingar úr öllum félagsmiðstöðvum Kópavogs komu saman og hlustuðu á fræðsluerindi um sjálfsmyndina, heilbrigð og óheilbrigð sambönd og mikilvægi holls matarræðis og hreyfingu. Forvarnarvikan fór einnig fram í félagsmiðstöðvum eldri borgara þar sem fjallað var um mikilvægi næringar og hreyfingu á efri árum og í ungmennahúsinu Molanum var til umhugsunar rótgrónar hugmyndir um karlmennskuna, með von um að hafa jákvæð áhrif á viðhorf manna til sjálfs síns og stuðla þannig að betri líðan og farsælli samskiptum.