- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Handavinnudagur var haldinn í félagsmiðstöðinni Boðanum í síðustu viku. Þar komu saman handavinnuhópar úr öllum félagsmiðstöðvunum. Skeggrætt var um saumaspor og prjónauppskriftir og skemmtu konur og einstakir karlar sér hið besta.
Boðið var upp á fyrirlestur um náttúrulitun og íslenskan útsaum frá Heimilisiðnaðarskólanum. Eftir hádegið var síðan tekið til við handavinnu af ýmsu tagi.
Handavinna í félagsmiðstöðvum Kópavogs er öllum opin sem eru búsettir í Kópavogi
Þar fer fram mismunandi vinna með handverk t.d. prjón, hekl, útsaum, perlusaum og hvaðeina það sem hver og einn hefur áhuga á.
Í félagsmiðstöðvunum er einnig prjónað fyrir hjálparsamtök fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Að vori er svo farið í eina sameiginlega vorferð þar sem skoðað er ýmiss konar handverk í nágrenni höfuðborgarinnar. Um kvöldið borða svo allir saman.
Handavinnuleiðbeinandinn, Guðlaug Rafnsdóttir, er á eftirfarandi stöðum:
Mánudaga fyrir hádegi: Gjábakki
Mánudaga eftir hádegi: Gullsmári
Þriðjudaga allann daginn í Boðanum
Miðvikudaga allann daginn í Gjábakka
Fimmtudaga allann daginn í Gullsmára
Fleiri myndir frá handavinnudeginum má finna á Facebook-síðu Kópavogsbæjar.