- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Skólanefnd Kópavogs auglýsir eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf í grunnskólum Kópavogs. Viðurkenningar verða veittar fyrir þrjú til fimm verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun innan skólanna. Með því er átt við nýjungar í skólastarfi eða þróunarverkefni sem fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skólastarfi.
– að það hefur verið unnið af frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð.
– að það hafi leitt til umbóta og/eða framfara í skólastarfi.
– að það feli í sér hvatningu til eftirbreytni innan viðkomandi skóla og utan.
Tilnefningar skulu berast eigi síðar en 15. mars 2013.