Huldubraut 25

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 19. ágúst 2024 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 byggingarleyfisumsókn fyrir Huldubraut 25 verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 23, 23B og 27 við Huldubraut.

Í breytingunni felst viðbygging við suðurhlið núverandi húss á lóðinni, sólstofa, alls 5,1 m2 að flatarmáli. Nýtingarhlutfall á lóðinni eftir breytingu verður 0,17.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1040/2024, eigi síðar en 3. október 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Huldubraut 25
Tímabil
2. september - 3. október 2024