Austurkór 96

Grenndarkynning.

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs þann 20. janúar 2025 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Austurkór 96.

Í breytingunni felst stækkun byggingarreits um 2 metra til vesturs á hluta sérafnotaflata íbúða á jarðhæð, íbúðir 101 og 102, fyrir tveimur sólskálum.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 174/2025, eigi síðar en 19. mars 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Austurkór 96
Tímabil
13. febrúar - 19. mars 2025