Dagskrá
Skrifstofa Starfsstöðva og þróunar
1.2310731 - Beiðni um viljayfirlýsingu vegna kaupa Þroskahjálpar á íbúðum fyrir fatlað fólk
Minnisblað skrifstofustjóra dags. 12.6.2024 lagt fram til kynningar.
Gestir
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Jón Rögnvaldsson, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
Skrifstofa Starfsstöðva og þróunar
2.23111423 - Tillaga starfshóps um helgaropnun
Minnisblað skrifstofustjóra og forstöðumanns félagsmiðstöðva dags. 4.6.2024 lagt fram til kynningar.
Gestir
- Jón Rögnvaldsson, skrifstofustjóri - mæting: 16:15
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
Skrifstofa Félagslegs húsnæðis
3.24041138 - Kæra nr. 142-2024. Félagslegt leiguhúsnæði
Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála vegna uppsagnar á húsaleigusamningi dags. 16.5.2024 lagður fram til kynningar.
Gestir
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:43
Skrifstofa Þjónustu og sértækrar ráðgjafar
4.24052443 - Niðurstöður frumkvæðisathugunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á heimasíðum
Niðurstöður frumkvæðisathugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á heimasíðum sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.
Gestir
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
Skrifstofa Þjónustu og sértækrar ráðgjafar
5.2406730 - Endurskoðun á reglum um NPA 2024
Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk lagðar fram til afgreiðslu.
Gestir
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Kristín Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:56
Skrifstofa Þjónustu og sértækrar ráðgjafar
6.24052718 - Áfrýjun umsóknar um stuðningsþjónustu
Áfrýjun dags. 14.5.2024 ásamt tilgreindum fylgiskjölum lögð fram til afgreiðslu að nýju.
Gestir
- Kristín Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:56
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
Barnavernd
7.24061007 - Vistun barna utan heimilis 2024
Minnisblað skrifstofustjóra dags. 12.6.2024 lagt fram til kynningar.
Gestir
- Dagbjört Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 17:08
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
Skrifstofa Ráðgjafar
8.2401489 - Reglur um fjárhagsaðstoð
Minnisblað skrifstofustjóra dags. 11.6.2024 lagt fram til kynningar.
Gestir
- Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 17:40
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
Skrifstofa Ráðgjafar
9.24042372 - Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðarráði óskar eftir minnisblaði um málefni heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
Afgreiðslu á tillögu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur aðalmanns Pírata að bókun velferðarráðs var frestað á síðasta fundi ráðsins og er því lögð fyrir að nýju til afgreiðslu.
Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður Viðreisnar, Hólmfríður Hilmarsdóttir aðalmaður Vina Kópavogs og Erlendur H. Geirdal áheyrnarfulltrúi Samfylkingar tóku undir tillögu Sigurbjargar að bókun velferðarráðs.
Tillagan er svohljóðandi:
"Velferðarráð samþykkir að við endurskoðun velferðarstefnu Kópavogs haustið 2024 verði mótuð stefna Kópavogsbæjar í málefnum heimilislausra. Stefnan mæli fyrir um hvernig þjónustu við heimilislausa skuli háttað og taki mið af þörfum hópsins, byggi á skaðaminnkandi nálgun og miði að því að tryggja hópnum aðgengi að þjónustu og húsnæði án strangra skilyrða. Í samræmi við tillögur skýrslu verkefnastjóra samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra verði unnið út frá kjarna þeirrar hugmyndafræði að húsnæði sé grunnþörf sem þarf að mæta áður en tekist er á við annan vanda sem einstaklingur kann að kljást við, svo sem fíkni-og/eða geðvanda."
Gestir
- Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 17:40
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
Almenn erindi
10.2002676 - Stefnumótun - nefndir ráð
Sviðsstjóri og verkefnastjóri velferðarsviðs kynna framgang aðgerða í aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2024.
Gestir
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
Almenn erindi
11.22067459 - Kynning á starfsemi velferðarsviðs
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.
Gestir
- Karítas Sandholt, lögfræðingur - mæting: 16:15
- Auður Birgisdóttir, lögfræðingur - mæting: 16:15
Fundi slitið - kl. 18:52.