- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Bæjarráð vísar erindinu til formanns bæjarráðs og bæjarstjóra til frekari úrvinnslu.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ég tek undir með starfsfólki heilsugæslunnar Hvammi.
Ómar Stefánsson."
Lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Sigríði Hermannsdóttur, kt. 080150-4079 og Jónasi H. Jónassyni, kt. 161051-3229, lóðinni Hamraenda 1 - 3.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Reyni Daníel Gunnarssyni, kt. 240952-2629 lóðinni að Hlíðarenda 1.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Reyni Daníel Gunnarssyni, kt. 240952-2629 lóðinni að Hlíðarenda 3.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Kristínu Sigrúnu Halldórsdóttur, kt. 111047-3679 lóðinni að Markavegi 6.
Bæjarráð felur bæjarritara að óska eftir fundi fjárlaganefndar.
Lagt fram.
"Á næsta fundi bæjarráðs mun ég leggja að nýju fyrir drög að reglum um kattahald í Kópavogi og leggja til að þeim verði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Guðríður Arnardóttir."
Formaður ráðsins óskar eftir því að bæjarlögmaður taki saman minnisblað vegna málsins.
"Óskað er eftir upplýsingum vegna áranna 2006, 2007, 2008, 2009 og útgönguspá 2010 um fjölda barna í leikskólum, fjölda starfsmanna og fjárveitingar til leikskóla m.v. verðlag 1.1.2010. Sömu upplýsingar verði teknar saman vegna grunnskóla.
Gunnar Ingi Birgisson."
"Greinargerð
Undanfarið hefur ríkisstjórnin staðið fyrir breytingum á skattkerfinu með það að markmiði að gera átak í því að ýta undir framkvæmdir einstaklinga og hækka þannig atvinnustig þjóðarinnar. Átakið hefur hlotið heitið ""allir vinna"" og tekur mið af því að búa til hvata til að fólk ráðist í framkvæmdir sem snúa að viðhaldi og breytingum á húsnæði gegn því að njóta skattaafsláttar. Fleiri hafa komið að þessu átaki þar sem bankarnir hafa boðið upp á lán á hagstæðum kjörum og hafa þeir kynnt lánin sem hluta af átakinu. Einnig hafa samtök launþega og atvinnurekenda komið að átakinu. Sveitarfélögin geta lagt sín lóð á vogarskálarnar og ýtt undir framkvæmdir í gegnum tekjustofna sína. Lækkun gatnagerðargjalda er ein leið en sveitarfélögunum eru settar hömlur í þeim efnum þar sem svigrúm fyrir afslætti gatnagerðargjalda vegna stækkunar á eldra húsnæði er lítið. Með því að auka það er líklegt að hægt sé að búa til hvata til framkvæmda en þær eru um þessa mundir mjög litlar og tekjutap sveitarfélaganna því hverfandi lítið. Stækkun á eldra húsnæði myndi síðan auka tekjur sveitarfélagsins til lengri tíma.
Ármann Kr. Ólafsson
Gunnar Ingi Birgisson."
Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.
"Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á nauðsyn þess að koma á tengingu Strætós milli Vatnsendahverfis og Mjóddar.
Tengingin er nauðsynleg fyrir íbúa í nýju hverfum Kópavogs auk þess sem hún myndi bæta tengingu við íþróttamannvirki í Kórnum fyrir fjölmarga íbúa í eldri hverfum bæjarins. Einnig er þetta nauðsynlegt fyrir uppbyggingu á nýju atvinnuhverfi í Hvörfum.
Ármann Kr. Ólafsson
Gunnar Ingi Birgisson."
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Samstaða hefur verið í bæjarstjórn Kópavogs um mikilvægi þessarar samgöngubótar og er fulltrúi Kópavogs í stjórn Strætó að fylgja málinu eftir.
Guðríður Arnardóttir."
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að óska eftir framkvæmdaráætlun lóðarhafa fyrir eftirtalin sérbýli. Þar komi m.a. fram hvenær hús verði frágengin að utan sem og frágangur á lóð.
Aflakór 9, 10, 16, Akrakór 6, Álaþing 5, Ásaþing 8, 10 ,12, Breiðahvarf 3, 5 Dalaþing 1, 4, 10, 21, Gulaþing 60, 66, Hálsaþing 1, 3, Heiðaþing 5, Hólmaþing 15, Kópavogsbarð 1, Skjólbraut 13, 13A, Vesturvör 13, Þrymsalir 18 og Örvasalir 3.
Meirihluti bæjarráðs lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarráð samþykkir að segja upp samningi við Sauðfjáreigendafélag Kópavogs."
Tillagan samþykkt með þremur atkvæðum. Gunnar Ingi Birgisson greiddi atkvæði gegn tillögunni og Ármann Kr. Ólafsson sat hjá.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
"Óska eftir upplýsingum um hver sjái þá um smölun í landi Kópavogs.
Ómar Stefánsson."
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla lögfræðiálits vegna málsins.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar séu innan þeirra marka, sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar og felur bæjarstjóra að afla frekari gagna.
Bæjarráð hafnaði tillögu leikskólanefndar, þar sem hún gerði ráð fyrir fækkun rýma á leikskólum bæjarins. Það hefði annað hvort leitt til fjölgunar á biðlista eftir leikskólarými eða kostnaðar við byggingu nýrra rýma. Bæjarráð leggur áherslu á að vel er búið að börnum á leikskólum bæjarins í dag.
Lagt fram.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um kostnað við skólaaksturinn.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Lagt fram.