Námskeið fyrir börn og fjölskyldur

Námskeiðin miða að því að styrkja börn í leik og starfi.
Boðið er upp á námskeið þannig að börn og foreldrar læri aðferðir til þess að draga úr kvíða og auka sjálfstraust. Námskeið fyrir foreldra barna með hamlandi ADHD einkenni styður foreldra í því að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með ADHD. Loks eru PMTO námskeið fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika.