- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Á fundi skipulagsráðs þann 19. ágúst 2024 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að byggingarleyfisumsókn fyrir Vallargerði 6 verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 2, 4, 8, 10 og 12 við Vallargerði og nr. 1, 3, 5, 7 og 9 við Melgerði.
Sótt er um að hækka húsið um eina hæð. Við það eykst byggingarmagn á lóðinni um 120,7 m² úr 106,9 m² í 227,6 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,12 í 0,26.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr.1038/2024, eigi síðar en 3. október 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin