Urðarbraut 9

Grenndarkynning

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 2. september 2024 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Urðarbraut 9.

Í breytingunni felst að eldri bílskúr verði rifinn og nýr byggður á sama stað, með 4 m² tengibyggingu við íbúðarhúsið. Þak gamla bílskúrs var flatt en nýi bílskúrinn hefur tvíhalla hærra þak.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1192/2024, eigi síðar en miðvikudaginn 6. nóvember 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Urðarbraut 9
Tímabil
7. október - 6. nóvember 2024